Rent a Villa rent a house rent house leigja hús leiga sumarfrí sumarhús tuscany tuscany toscana toscana vacation ferie frí orlof orlofshús frí sumarfrí gisting sleep lucca
Tuscany.is býður Íslendingum þetta fallega sumarhús til leigu nálægt Lucca í Toscana.  Casa Casciani er yndislegt sveitahús til leigu í hjarta sveitasælunnar. Húsið er staðsett inn í kastaníuskóginum við Celle dei Puccini, á þröskuldi "La Garfagnana" svæðisins og í skotfæri við Lucca, Flórens, Pisa og ítölsku rivíeruna.

Sumarleyfishúsið við Lucca...

Casa Casciani er kjörið fyrir sumarleyfi í Toscana.  Húsið var byggt um 1910, og er í raun lítil, krúttleg villa, böðuð sólskini allan daginn, frá snemma á morgnanna til seint um eftirmiðdaginn.  Húsið hefur verið endurnýjað frá grunni, og var gamla stílnum viðhaldið við endurgerðina.  Staðsetningin er frábær til að slaka á í sólinni allan daginn eða sem upphafstaður í dagsferðum um þetta ákaflega fallega svæði, Lucca sjálfa og norður héraðið í Toscana.  Lucca héraðið býður uppá ótrúlega möguleika fyrir ferðamenn, allt frá Versilia strandlengjunni með Viareggio og Forte dei Marmi, bóhem borgirnar, fremstar í flokki, til Garfagnana svæðisins, þekktu fyrir einstaka náttúrufegurð og Apuan alpana, til hæðanna kringum Lucca þar sem vín og ólífuolía fléttast inn í daglegt líf allra ásamt með fallegustu og þekktustu "villum" héraðsins og til Lucca, gimsteini Toscana, með sína rómversku veggi og endalausar listasýningar, tónleika og bragðlaukaævintýri.
Sumarleyfishúsið Casa Casciani er líka frábærlega vel staðsett fyrir hvern þann sem hefur hug á að heimsækja aðra bæi og borgir í Toscana og nágrenni þeirra.  Húsið er eingöngu 30 mín fjarlægð frá Pisa, ströndinni og Bagni di Lucca með sitt "Spa" sem fyrirmenn á 14 öld heimsóttu.  Flórens og skíðasvæðið í Abetone eru eingöngu í klukkutíma fjarlægð og Siena og Cinque Terre eru 1,5 klst fjarlægð.
Casa Casciani er í eigu og umsjá Íslendinga.  Við eigum heima í næsta nágrenni og erum alltaf til taks til upplýsingargjafa, þýðinga, ábendinga, veitingastaðaráðgjöf og hvað annað sem til skyldi falla til að gera fríið ykkar eins ánægjulegt og mögulegt er.  Við getum einnig hjálpað til við að skipuleggja dagsferðir.  VIð viljum að viðskiptavinir okkar njóti sumarleyfisins til hins ítrasta þegar þeir leigja hjá okkur litla húsið okkar í Toscana.  Endilega vafrið og skoðið fleiri myndir á síðunni, sjáið upplýsingar um Lucca og einnig hvað aðrir hafa skrifað um ferðalagið sitt hér í Norður- Toscana.
Sjáið meira um Casa Casciani og fleiri myndir
Sumarhús til leigu í Toscana
Casa Casciani yndislegt sumarhús til leigu sérstaklega fyrir Íslendinga