Lucca

Lucca (framb. lúkka) kölluðu íslenskir menn Lukku um það leiti sem Nikulás Bergsson ábóti á Munkaþverá fór þar um árið 1153.

Lucca er skemmtileg og falleg virkisborg. Bygging hinna 4 km löngu og 12 metra háu virkisveggja sem umlykja miðbæ Lucca hófst árið 1544, en þar sem bygging þeirra reyndist mjög kostnaðarsöm lauk henni ekki fyrr en árið 1650. Virkisveggirnir voru byggðir til að verja borgina ágangi Flórensarbúa, en borgríkin tvö börðust um yfirráðinn í Toscana í margar aldir. Tilvalið er að fara í göngutúr eða hjólatúr ofan á virkisveggjunum og njóta útsýnisins þaðan.


Miðbær Lucca er lokaður fyrir umferð nema þeim sem þar eiga heima. Borgin er full af lífi og aðalferðamátinn inní borginni er reiðhjól.  Upplagt er að skoða dómkirkjuna og kirkju heilags Michele in Foro. Piazza Napoleone er einnig alveg stórkostlegt torg og þar eru haldnir tónleikar allan Júlímánuð ár hvert- Lucca Summer Festival.  Via Fillungo og svæðið við Piazza dell' Anfiteatro (Hringleikahústorgið) og hinar ýmsu hliðargötur eru fullar af frábærum verslunum. Torgið dregur nafn sitt af rómversku hringleikahúsi sem þar var, en samkvæmt sögulegum heimildum komust 10.000 áhorfendur fyrir í því.

Frá árinu 1970 hefur verið haldinn fornmunamarkaður þriðja sunnudag og laugardaginn á undan hvers mánaðar í Lucca. Í dag eru um 220 antiksalar sem selja antikmuni á torgum og götum bæjarins. Lucca er full af frábærum veitingastöðum og kaffihúsum. Margar glæsilegar hallir eru í nágrenni Lucca og eru sumar opnar almenningi. Íbúar Lucca eru um 85.000. 

Í hlíðunum norðan við Lucca er hin svokallaða "Strada del vino" sem er víngatan í Lucca héraðinu.  Ef farið er eftir þeirri leið er ferðast um vínlendur héraðssins, Colline Lucchesi og Montecarlo.  Lucca er þekkt hérað fyrir ólífuolíuna sem þar er framleidd, sem talin er ein sú besta í heimi.