Húsið er rétt um 100 fm. Á neðri hæð hússins er gengið inn í Týpískt Toscana sveitaeldhús með arni, rúmgóð stofa og lítið bað. Á annarri hæðinni eru svefnherbergin, eitt hjónaherbergi og eitt tveggja manna herbergi sem auðveldlega er hægt að breyta í hjónaherbergi. Það er vel möguleiki að bæta við bedda fyrir 1-2 litla einstaklinga. Eitt baðherbergi með sturtu er til afnota fyrir bæði svefnherbergin.
Casa Casciani yndislegt sumarhús til leigu sérstaklega fyrir Íslendinga
Hús til leigu nálægt Lucca í Toscana
Casa Casciani er yndislegt orlofshús með 2 svefnherbergjum til leigu nálægt Lucca, í hjarta sveitasælunnar í Toscana.
Húsið hefur verið endurgert og var upprunalegu útliti viðhaldið bæði innandyra og utan. Það er staðsett í suðurhlíð og hefur gott aðgengi.
Það er steinlögð stétt fyrir framan allt húsið sem hægt er að ganga út á bæði úr eldhúsi og stofu. Við eldhúsið er útiaðstaða undir "portico" til að borða úti í skjóli frá heitri sólinni. Til að kæla sig er köld útisturta sem getur verið ansi gott að skella sér undir.
Flestir þeir sem hafa leigt húsið nota það sem "base" til að skoða fjallahéraðið í kring og menninguna í þessum norðurhluta Toscana, ásamt því að skoða Lucca, Pisa og Flórens.
Gestir fá baðhandklæði og skipt er á rúmum og handklæðum einu sinni í viku. Við getum líka skipulagt þrif í lok ferðarinnar ef vill, gegn aukagjaldi. Við búum í næsta nágrenni þannig að það er auðvelt um vik fyrir okkur að koma og aðstoða við þýðingar, veitingahúsaráðgjöf og jafnvel hjálpa til við skipulagningu dagsferða. Ef þið komið seint um kvöld þá getum við sett eitthvað smáræði í formi morgunmats í ísskápinn. Við viljum að gestir okkar eigi frábærar stundir og njóti sín í fríinu sínu.
Í eldhúsinu eru allar brýnustu nauðsynjar til þess sem gera þarf þar. í stofunni er lítið sjónvarp og DVD/CD spilari. Í húsinu eru viftur í svefnherbergjunum og færanlegt loftkælingartæki og rakatæki. Það er einnig kynding í húsinu fyrir kalda vetrarmánuðina. Þá er nú líka mjög notalegt að sitja bara í eldhúsinu með arininn á syngjandi blússi.